Hver er ég?

Vilhjálmur

Ég Vilhjálmur Árnason hef ákveðið að gefa kost á mér í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Grindavík í komandi prófkjöri.

Ég er fæddur og uppalinn í Skagafirði. Lauk ég stúdentsprófi af viðskipta- og hagfræðibraut frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, hef einnig lokið námi frá Lögregluskóla ríkisins og kennsluréttindanámi sem ökukennari frá Háskóla Íslands. Samhliða námi var ég sjálfstæður atvinnurekandi. Nú er ég búsettur í Grindavík ásamt sambýliskonu minni Sigurlaugu Pétursdóttur. Ég starfa sem lögreglumaður hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og stunda ökukennslu einnig.

Ég hef starfað mikið að félagsmálum og vil láta gott af mér leiða og taka þátt í uppbyggingu samfélagsins. Ég sat 3 ár í stjórn nemendafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, eitt þeirra sem forseti, nú starfa ég í stjórn Landsambands lögreglumanna, sit í valnefnd Lögregluskólans og ásamt því að hafa sinnt fleiri trúnaðarstörfum innan lögreglunnar.

Fram til þessa hef ég verið virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins, hef verið í kosningastjórn í sveitastjórna- og alþingiskosningum, var formaður Víkings félags ungra Sjálfstæðismanna í Skagafirði og er nú formaður Freyju félags ungra Sjálfstæðismanna í Grindavík. Ég er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Ég vil beita kröftum mínum í að byggja upp bjarta og hamingjusama framtíð fyrir íbúa Grindavíkur. Það vil ég gera með heiðarlegum og upplýstum hætti í samvinnu við íbúana.

Mín framtíðarsýn er að auðvelda verður atvinnulífinu í Grindavík að dafna svo það geti séð heimilum í Grindavík fyrir tekjum og þjónustu til að vaxa úr grasi. Til að það verði hægt verður að styrkja Grindavík með aðhaldi í rekstri bæjarins, auka þannig framkvæmdagetu Grindavíkur, tryggja öryggi, efla menntun í Grindavík, nýta auðlindirnar á hagkvæman hátt og hafa öruggar og góðar samgöngur.

Ég er 26 ára lögreglumaður, ökukennari og hef á undanförnum árum tekið sjálfstæðan þátt í atvinnulífinu. Því tel ég mig hafa góða sýn í raunverulegar aðstæður fólks í dag. Ég tel mig hafa margt til málanna að leggja og vil koma að því skapa bjarta framtíð í Grindavík.

Framboðið hefur opnað heimasíðuna www.villiarna.is

Lifið heil inn í bjarta framtíð.

Vilhjálmur Árnason

  • Ómenguð gæði!